Grosskreutz: Draumur að spila fyrir Liverpool

Kevin Grosskreutz í leik með Dortmund.
Kevin Grosskreutz í leik með Dortmund.

Kevin Grosskreutz, vængmaður Þýskalandsmeistara Borussia Dortmund, dreymir um að spila einn daginn fyrir enska úrvalsdeildarliðið Liverpool.

Grosskreutz hefur unnið þýsku deildina undanfarin tvö ár með Dortmund og verið einn besti maður liðsins.

„Ég elska Borussia en ég útiloka samt ekkert,“ segir Grosskreutz í viðtali við Sports Image. „Það væri draumur að spila fyrir Liverpool á einhverjum tímapunkti. England er draumur hvers fótboltamanns,“ segir hinn 24 ára gamli Kevin Grosskreutz.

Grosskreutz verður í eldlínunni með Dortmund þegar þýska deildin hefst aftur 24. ágúst og í Meistaradeildinni þar sem Þjóðverjarnir ætla að gera betur en í fyrra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert