Unglingaflokkur

Eva Björk Ægisdóttir

Þórdís Inga Pálsdóttir og Kjarval frá Blönduósi unnu unglingaflokk á landsmóti með einkunnina 8,91. Sól og blíða er á Hellu og fólk er heldur léttklæddara í brekkunni en alla síðustu viku. Unglingarnir fengu versta veðrið á mótinu þegar forkeppni í þeim flokki fór fram á þriðjudaginn sl.

Keppnin var hnífjöfn og voru þrír knapar í fimmta sæti með sömu einkunn.  

Úrslit í unglingaflokki:

1. Þórdís Inga Pálsdóttir og Kjarval frá Blönduósi. Einkunn: 8,91
2. Konráð Axel Gylfason og Vörður frá Sturlureykjum 2. Einkunn: 8,87
3. Aron Freyr Sigurðsson og Hlynur frá Haukatungu Syðri 1. Einkunn: 8,75
4. Ylfa Guðrún Svafarsdóttir og Héla frá Grímsstöðum. Einkunn: 8,68
5.-7. Hafþór Hreiðar Birgisson og Ljóska frá Syðsta-Ósi. Einkunn: 8,65
5.-7.Viktoría Eik Elvarsdóttir og Mön frá Lækjarmóti. Einkunn: 8,65
5.-7.Valdís Björk Guðmundsdóttir og Hrefna frá Dallandi. Einkunn: 8,65
8. Arnór Dan Kristinsson og Straumur frá Sörlatungu. Einkunn: 8,62

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert