Íslenski hesturinn stækkar

Þórður Pálsson og Pétur Halldórsson sýningarstjórar kynbótahrossa á landsmóti. Pétur …
Þórður Pálsson og Pétur Halldórsson sýningarstjórar kynbótahrossa á landsmóti. Pétur segir íslenska hestinn stækka. mbl.is/Þórunn
„Íslenski hesturinn er klárlega að stækka,“ sagði Pétur Halldórsson sýningastjóri kynbótahrossa á landsmóti. Fyrir nokkrum árum tók Pétur saman gögn úr mælingu hrossa á kynbótasýningum. Samkvæmt þeim þá var meðalstærð stóðhesta 141 sentímetri á herðakamb, mælt á stöng, og voru hryssurnar litlu minni eða um 139-140 sentímetrar á hæð. Þegar hross fara í sýningu þá er m.a. hæð þeirra mæld. „Síðan þá hafa hrossin vaðið upp með ótrúlegum hraða. Ungir stóðhestar sem koma í dóm eru til dæmis í röðum í 145 og upp í 148 sentímetra. Þetta eru ótrúlega miklar breytingar á ekki lengri tíma,“ sagði Pétur. Spurður hvað gæti valdið þessari stærð benti hann m.a. á að margir þættir gætu valdið. Eftirsótt þykir að hafa hrossin há á herðar og með hátt setta og granna hálsa. Því er sótt í stóðhesta sem búa yfir þessum eiginleikum. Þá taka hross út þroska snemma og alast upp við gott atlæti.

Athygli vakti að einn stóðhestur á landsmótinu, Svaði frá Hólum, mældist 153 sentímetrar á herðakamb. Metthe Maneseth, knapi hestsins, segir stærðina ekki há honum en vissulega þurfi hestar sem eru jafn stórir og hann lengri tíma til að byggja upp vöðva til að klára stórar hreyfingar. Metthe tekur í sama streng og Pétur og segir íslenska hesta fara stækkandi og nefnir einnig gott atlæti sem m.a. eina hugsanlegu skýringuna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert