Kaka tryggði Brasilíu sigur á Króötum

Brasilíumaðurinn Kaka fagnar marki sínu gegn Króötum.

Brasilíumaðurinn Kaka fagnar marki sínu gegn Króötum. Reuters

Heimsmeistarar Brasilíu sigruðu Króata í fyrsta leik sínum á HM í Þýskalandi í kvöld 1:0. Leikurinn fór fram á Ólympíuleikvangingum í Berlín en það var miðjumaðurinn Kaka sem tryggði Braslíu sigurinn með laglegu marki á 44. mínútu. Fyrir fram var talið að Króatar yrðu helsta hindrun Brasilíu í riðlinum þar sem einnig leika Ástralir og Japanir. Heimsmeistararnir ættu því að eiga nokkuð greiða leið í 16-liða úrslit samkvæmt því.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, HM í fótbolta — Fleiri fréttir

Föstudaginn 23. júlí

Fimmtudaginn 15. júlí

Miðvikudaginn 14. júlí

Þriðjudaginn 13. júlí

Mánudaginn 12. júlí

Sunnudaginn 11. júlí

Laugardaginn 10. júlí

Föstudaginn 9. júlí

Fimmtudaginn 8. júlí


finnur.is