Metfjöldi sá Bandaríkin falla úr leik
Aldrei hefur knattspyrnuleikur dregið fleiri Bandaríkjamenn að sjónvarpstækjum sínum og viðureign landsliðs þeirra við Gana í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins á síðasta laugardag. Samkvæmt mælingum sáu 19,4 milljónir Bandaríkjamanna. Það t.d. 1,3 milljónum fleiri en fylgdust með síðasta úrslitaleik LA Lakers og Boston um NBA titilinn í körfuknattleik í vor.
Fyrra áhorfsmet á knattspyrnuleik í Bandaríkjunum var frá úrslitaleik Brasilíu og Ítalíu á HM 1994 sem fram fór í Bandaríkjunum. Talið er að rúmar 18 milljónir hafi fylgst með þeim leik í sjónvarpi.
Áhugamenn um knattspyrnu í Bandaríkjunum og víða eru afar ánægðir með þá miklu athygli sem bandaríska landsliðið fékk í heimalandi sínu meðan það tók þátt í HM.
Til hliðsjónar má geta þess að 19,1 milljón manns fylgdust með úrslitaleik bandarísku hafnarboladeildarinnar í fyrra og 16,5 milljónir sátu við sjónvarpið og fylgdust með lokahring Masters-mótsins í golfi í vor.






