Villa tryggði Spáni sigur og undanúrslitaleik við Þýskaland

David Villa fagnar ásamt Cesc Fabregas eftir að hafa skorað sigurmarkið. stækka

David Villa fagnar ásamt Cesc Fabregas eftir að hafa skorað sigurmarkið. Reuters

Spánverjar eru komnir í undanúrslit á HM í fyrsta sinn í 60 ár eftir sigur á Paragvæ, 1:0, á Ellis Park í Jóhannesarborg í kvöld. David Villa skoraði sigurmarkið eftir að bæði lið höfðu klúðrað vítaspyrnu og Spánn mætir Þýskalandi í undanúrslitum á miðvikudaginn kemur.

Paragvæ fékk vítaspyrnu á 57. mínútu en Iker Casillas varði frá Óscar Cardozo. Tveimur mínútum síðar fékk Spánn vítaspyrnu og Xabi Alonso skoraði en var látinn endurtaka spyrnuna. Þá varði Justo Villar frá honum. Það var síðan á 83. mínútu sem David Villa skoraði sigurmarkið, 1:0.

Lið Paragvæ: Villar - Verón, da Silva, Alcaraz, Morel - V.Cáceres, Santana, Riveros, É.Barreto - Cardozo, Valdez.
Varamenn: Caniza, J.Cáceres, Bonet, Santa Cruz, Benítez, D.Barreto, Vera, Torres, Lucas, Ortigoza, Bobadilla, Gamarra.

Lið Spánar: Casillas - Ramos, Piqué, Puyol, Capdevila - Alonso, Xavi, Sergio - Torres, Villa, Iniesta.
Varamenn: Albiol, Marchena, Fabregas, Valdés, Mata, Arbeloa, Pedro, Llorente, Martínez, Silva, Navas, Reina.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, HM í fótbolta — Fleiri fréttir

Föstudaginn 23. júlí

Fimmtudaginn 15. júlí

Miðvikudaginn 14. júlí

Þriðjudaginn 13. júlí

Mánudaginn 12. júlí

Sunnudaginn 11. júlí

Laugardaginn 10. júlí

Föstudaginn 9. júlí

Fimmtudaginn 8. júlí


finnur.is