Boðflennan vildi Cassano á HM (myndskeið)

Öryggisverðir voru fljótir að koma Ítalanum af vellinum. stækka

Öryggisverðir voru fljótir að koma Ítalanum af vellinum. Reuters

Ítalskur knattspyrnuáhugamaður hefur sennilega ekki farið framhjá þeim sem fylgdust með undanúrslitaleik Þýskalands og Spánar á HM í knattspyrnu í gærkvöld þegar hann hljóp inná völlinn svo stöðva þurfti leikinn.

Maðurinn heitir Mario Ferri og vildi með uppátækinu sýna fram á andstöðu sína við þá ákvörðun þjálfara ítalska landsliðsins að velja ekki Antonio Cassano í landsliðshópinn fyrir mótið.

Ferri hefur áður tekið uppá þessu því hann hljóp inná völlinn í æfingaleik Ítalíu og Hollands síðastliðinn vetur. Hann komst þó ekki langt í gær því öryggisverðir voru fljótir til og komu honum í burtu.

Myndband af atvikinu í gær má sjá hér.

Ferri blés í Vuvuzela-lúður áður en hann var handsamaður.

Ferri blés í Vuvuzela-lúður áður en hann var handsamaður. Reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is