HM: Spjöldin miklu færri nú en fyrir fjórum árum
Yuichi Nishimura rekur Brasilíumanninn Felipe Melo útaf í viðureign Hollendinga og Brasilíumanna. ROGAN WARD
Miklu færri spjöld hafa farið á loft á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í Suður-Afríku heldur á HM í Þýskalandi fyrir fjórum árum og fagnar Sepp Blatter forseti Alþjóða knattspyrnusambandsins þessum tíðundum.
Þegar 62 leikjum af 64 er lokið hafa gulu spjöldin farið 229 sinnum á á loft og rauðu spjöldin 16 sinnum. Í Þýskalandi árið 2006 voru á sama tíma komin 307 gul spjöld og rauðu spjöldin voru 28.
,,Ég óska liðunum og þjálfurunum til hamingju með þennan árangur og það kemur í ljós að meiðslin hafa verið mun færri en áður. Þetta sýnir að leikmenn bera virðingu fyrir mótherjum sínum þegar þeir fara í tæklingarnar,“ sagði Blatter á fréttamannafundi í dag.






