Howard Webb dæmir úrslitaleikinn

Howard Webb ræðir við Brasilíumanninn Ramires á HM. stækka

Howard Webb ræðir við Brasilíumanninn Ramires á HM. Reuters

Englendingurinn Howard Webb mun dæma úrslitaleikinn á milli Spánverja og Hollendinga á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu sem fram fer á Soccer City vellinum í Jóhannesarborg að því er Sky Sports fréttastofan greindi frá rétt í þessu.

Síðasti Englendingurinn til að dæma úrslitaleikinn á HM var Jack Taylor sem dæmdi úrslitaleik V-Þjóðverja og Hollendinga árið 1974 þar sem Þjóðverjar fóru með sigur af hólmi.

Webb, sem dæmdi úrslitaleikinn í Meistaradeildinni í vor á milli Inter og Bayern München, hefur átt góðu gengi að fagna í þeim leikjum sem hann hefur dæmd á HM og heldur svo sannarlega uppi heiðri Englendinga í Suður-Afríku en enska landsliðið var slegið út í 16-liða úrslitunum með 4:1 tapi gegn Þjóðverjum.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is