Kjær samdi við Wolfsburg

Simon Kjæar í búningi Wolfsburg. stækka

Simon Kjæar í búningi Wolfsburg. www.vfl-wolfsburg.de

Þýska knattspyrnuliðið Wolfsburg greinir frá því á vef sínum í dag að það hafi samið við danska landsliðsmanninn Simon Kjær. Danski miðvörðurinn kemur til Wolfsburg frá ítalska liðinu Palermo og gerði hann fjögurra ára samning við þýska liðið sem Englendingurinn Steve McClaren þjálfar.

Kjær er 21 árs gamall og var í liði Dana á heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku en hann var á mála hjá Midtjylland í Danmörku áður en hann gekk í raðir Palermo fyrir tveimur árum.

Kjær er annar sterki varnarmaðurinn sem Wolfsburg, meistarar 2009, kaupa en það gekk frá kaupum á þýska varnarmanninum Arne Friedrich frá Herthu Berlin á dögunum.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is