Nýtt met í áhorfi í Þýskalandi

Stuðningsmenn þýska landsliðsins niðurlútir eftir tap sinna manna í gær. stækka

Stuðningsmenn þýska landsliðsins niðurlútir eftir tap sinna manna í gær. Reuters

Nýtt met í áhorfi var slegið í þýsku sjónvarpi í gærkvöld en 31,1 milljónir manna fylgdust með viðureign Þjóðverja og Spánverja í undanúrslitum heimsmeistaramótsins sem sjónvarpað var á þýsku sjónvarpsstöðinni ARD.

Þetta er í fyrsta sinn sem áhorf fer yfir 30 milljónir en inni í tölunni er ekki fjöldi þeirra sem fylgdust með leiknum á risaskjá sem komið var upp í víðs vegar um borgir og bæi í Þýskalandi

Gamla metið var 29,7 milljónir en sá fjöldi sá viðureign Þjóðverja og Ítala í undanúrslitum á HM fyrir fjórum árum þar sem Þjóðverjar biðu lægri hlut í framlengdum leik.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is