Óvíst hvort Klose geti spilað

Miroslav Klose fagnar marki á HM. stækka

Miroslav Klose fagnar marki á HM. Reuters

Miroslav Klose framherji Þjóðverja á það á hættu að missa af leik sinna manna gegn Úrúgvæjum en þjóðirnar eigast við í leik um þriðja sætið á HM á laugardaginn.

Meiðsli í baki eru að angra Klose sem geta komið í veg fyrir að hann geti spilað á Port Elisabeth vellinum á laugardagskvöldið.

Klose á möguleika á að slá markamet Brasilíumannsins Ronaldo í úrslitakeppni HM. Ronaldo skoraði 15 mörk en Klose, sem hefur skorað fjögur mörk í Suður-Afríku, hefur skorað 14 mörk, jafnmörg og goðsögnin Gerd Müller.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is