Spænskir fjölmiðlar: Var þetta Michael Jordan?
,,Bestir í heimi og á sunnudaginn heimsmeistarar,“ segir í umfjöllun spænska íþróttablaðsins Marca.
,,Ef fótbolti er list og hetjudáð er Spánn liðið til að fylgja. Í leik þeirra á móti frábæru liði Þjóðverja þá höfðu þeir allt. Þeir voru stórkostlegir og léku sinn langbesta leik í keppninni,“ segir í El Pais.
,,Spánverjar unnu ekki bara leikinn, þeir buðu upp á sýningu. Þetta minnti á brasilíska liðið 1970. Bráðum verður það Spánn 2010 sem allir tala um með listamenn í liðinu á borð við Xavi, Iniesta, Alonso og fleiri snillinga,“ segir í blaðinu El Mundo.
Fyrirliðinn Carlos Puyol fær gríðarlegt hrós en þessi hárprúði miðvörður Barcelona skoraði sigurmarkið með glæsilegu skallamarki, hans þriðja mark í 89 landsleikjum.
,,Var þetta Michael Jordan sem hoppaði upp nálægt vítapunktinum eða var þetta Súpermann?Nei það var einfaldlega Puyol,“ sagði í El Mundo.






