Drottningin mætti inn í búningsklefann (myndband)

Spánverjar fagna sigrinum á Þjóðverjum í fyrrakvöld. stækka

Spánverjar fagna sigrinum á Þjóðverjum í fyrrakvöld. Reuters

Sophia Margaret Victoria Frederica, drottning Spánar, var í sjöunda himni eftir sigur spænska landsliðsins í knattspyrnu á Þjóðverjum í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í knattspyrnu í fyrrakvöld.

 Drottningin heilsaði upp á spænsku hetjurnar, smellið HÉR

Sofia lét það verða sitt fyrsta verk eftir leikinn að heilsa upp á leikmenn landsliðsins í búningsklefanum þar sem hún klappaði þeim lof í lófa. Fyrirliðinn Carles Puyol, sem var hetja spænska liðsins en hann skoraði sigurmarkið, fór eitthvað hjá sér þegar Sofia tók í hönd hans enda var Puyol ber að ofan með handklæði reirt utan um mitti sér.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is