FIFA tilnefnir 10 bestu leikmennina á HM
FIFA hefur tilnefnd 10 leikmenn sem koma til greina sem besti leikmaður heimsmeistaramótsins í knattspyrnu en mótinu lýkur á sunnudaginn þegar Spánn og Holland leika til úrslita.
Sá sem hreppnir hnossið hlýtur gullboltann en á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi fyrir fjórum árum var Zinedine Zidane fyrir valinu þrátt fyrir að hafa verið skúrkur í úrslitaleiknum á móti Ítölum þegar hann fékk rautt spjald fyrir að skalla mótherja sinn í andlitið.
Sérstök nefnd á vegum FIFA tók þátt í að velja þá 10 leikmenn sem koma til greina en í nefndinni eru til að mynda Kalusha Bwalya, Christian Karembeu, Jomo Sono and Gérard Houllier. Það verða síðan fréttamenn sem fylgjast með mótinu í Suður-Afríku sem velja á milli þessara 10 leikmanna og verður valið kunngert á sunnudagskvöldið.
Leikmennirnir sem koma til greina eru:
Diego Forlan, Úrúgvæ
Asamoah Gyan, Ghana
Andres Iniesta, Spáni
Lionel Messi, Argentínu
Mesut Özil, Þýskalandi
Arjen Robben, Hollandi
Bastian Schweinsteiger, Þýskalandi
Wesley Sneijder, Hollandi
David Villa, Spáni
Xavi Hernandéz, Spáni
Þrír leikmenn koma til greina sem besti ungi leikmaðurinn á mótinu en það er Þjóðverjinn Thomas Müller, Mexíkóinn Giovani Dos Santos og Ganamaðurinn Andre Ayew.






