Íþróttir
|
HM í fótbolta
| mbl
| 9.7.2010
| 9:07
Löw fær nýjan samning
Þýska knattspyrnusambandið vill halda landsliðsþjálfaranum Joachim Löw og verður honum boðinn nýr samningur að því er þýska blaðið Bild greinir frá í dag. Samningur Löws rann út um mánaðarmótin en hann tók við þjálfun landsliðsins af Jürgen Klinsmann eftir heimsmeistaramótið í Þýskalandi fyrir fjórum árum.
Löw hefur náð góðum árangri með þýska liðið en þetta unga og spennandi lið leikur til úrslita um þriðja sætið á HM við Úrúgvæja á morgun en Þjóðverjar biðu lægri hlut fyrir Spánverjum í undanúrslitum í fyrrakvöld. Undir stjórn Löws hafa Þjóðverjar unnið 38 af 55 leikjum sínum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






