Asíu-Rooney samdi við Bochum

Jong Tae-se skallar boltann í leiknum vð Portúgal á HM. Fóturinn tilheyrir miðverðinum Ricardo Carvalho. stækka

Jong Tae-se skallar boltann í leiknum vð Portúgal á HM. Fóturinn tilheyrir miðverðinum Ricardo Carvalho. Reuters

Jong Tae-se, framherji knattspyrnulandsliðs Norður-Kóreu sem vakti nokkra athygli á HM í Suður-Afríku, hefur samið við þýska 2. deildarfélagið Bochum til tveggja ára.

Jong þótti yfirlýsingaglaður miðað við landa sína en hann sagðist fyrir keppnina ætla að skora í öllum leikjum Norður-Kóreu á HM, og kallaði sjálfan sig Asíu-Rooney. Fyrir fyrsta leikinn, gegn Brasilíu, tók heimsbyggðin ennfremur eftir því að Jong hágrét þegar þjóðsöngur Norður-Kóreu var leikinn.

Ekki náði hann að skora á HM en þótti samt kraftmikill og erfiður fyrir varnir mótherjanna. Jong er 26 ára gamall, fæddur og uppalinn í Japan en á norðurkóreska móður og er því gjaldgengur með landsliðinu þar. Hann fer til Bochum frá japanska liðinu Kawasaki Frontale.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is