Fyrirliðinn ætlar ekki í lyfjapróf
Giovanni van Bronckhorst, fyrirliði hollenska landsliðsins í knattspyrnu, segir að það komi ekki til greina að fara í lyfjapróf eftir úrslitaleikinn gegn Spáni annað kvöld, ef Holland stendur uppi sem heimsmeistari.
Van Bronckhorst, sem er 35 ára gamall, ætlar að leggja skóna á hilluna eftir úrslitaleikinn og sagði við hollenska fjölmiðla að hann ætlaði ekki að láta lyfjapróf eyðileggja fyrir sér stemninguna í leikslok ef það kemur í hans hlut að hampa heimsstyttunni eftirsóttu.
Hann þurfti að fara í lyfjapróf eftir sigurinn á Úrúgvæ í undanúrslitunum og missti fyrir vikið af fagnaðarlátum liðsins í búningsklefanum eftir leikinn.
„Ég fer ekki í lyfjapróf. Þetta er kveðjuleikurinn minn og ég geng af velli í síðasta sinn. Eftir síðasta leik var ég einn og einangraður og missti af öllu fjörinu. Þetta tók klukkutíma og 15 mínútur en sem betur fer var mér leyft að skreppa inní búningsklefann á meðan prinsinn og prinsessan voru þar," sagði van Bronckhorst.






