Klose á bekknum hjá Þjóðverjum

Miroslav Klose er varamaður í dag. stækka

Miroslav Klose er varamaður í dag. Reuters

Möguleikar Miroslav Klose á að jafna Ronaldo hinn brasilíska sem markahæsti leikmaður HM frá upphafi hafa dvínað nokkuð. Klose er ekki í byrjunarliði Þýskalands í bronsleiknum gegn Úrúgvæ sem hefst í Port Elizabeth klukkan 18.30.

Cacau kemur í staðinn fyrir Klose í fremstu víglínu Þjóðverja. Fyrirliðinn Philipp Lahm er ekki heldur með vegna meiðsla, Lukas Podolski er veikur en þó á varamannabekknum og Manuel Neuer víkur úr markinu fyrir Hans Jörg Butt. Þeir Dennis Aogo og Marcell Jansen koma einnig inní byrjunarliðið hjá Þjóðverjum.

Úrúgvæjar endurheimta hinsvegar tvo varnarmenn, fyrirliðann Diego Lugano sem var í leikbanni gegn Hollandi, og Jorge Fucile en þeir koma báðr inní byrjunarliðið.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is