Löw: Liðið sýndi andlegan styrk

Joachim Löw faðmar varnarmanninn Arne Friedrich eftir leikinn. stækka

Joachim Löw faðmar varnarmanninn Arne Friedrich eftir leikinn. Reuters

Joachim Löw, landsliðsþjálfari Þjóðverja, hrósaði sínum mönnum fyrir mikinn styrk eftir að þeir sigruðu Úrúgvæ, 3:2, í leiknum um bronsverðlaunin á HM í knattspyrnu í Port Elizabeth í kvöld.

„Í seinni hálfleiknum þurftum við að taka á öllu okkar til að snúa leiknum okkur í hag, og þá kom andlegur styrkur liðsins vel í ljós. Ég er afar ánægður með það og liðið verðskuldar þessa útkomu. Fyrir átta til níu mánuðum hefðum við aldrei reiknað með að ná svona langt," sagði Löw við fréttamenn eftir leikinn.

Þjóðverjar lentu undir í seinni hálfleiknum en náðu að jafna metin og Sami Khedira skoraði sigurmarkið átta mínútum fyrir leikslok. Diego Forlán átti síðan þrumuskot í þverslá þýska marksins með síðustu spyrnu leiksins.

Þýska liðið stillir sér upp eftir leikinn í kvöld.

Þýska liðið stillir sér upp eftir leikinn í kvöld. Reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is