Íþróttir
|
HM í fótbolta
| mbl
| 10.7.2010
| 8:10
Platini útskrifaður af sjúkrahúsinu
Michel Platini, forseti Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA, var útskrifaður af sjúkrahúsi í Jóhannesarborg í morgun en þangað var hann fluttur í gærkvöld eftir að hafa fallið í yfirlið á veitingastað.
Á vef UEFA er sagt að ekkert óeðlilegt hafi komið í ljós í rannsókn, Platini sé við góða heilsu og hlakki til að horfa á úrslitaleik HM milli Spánar og Hollands annað kvöld á Soccer City leikvanginum í Jóhannesarborg.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






