Þrír tilnefndir sem besti ungi leikmaðurinn

Thomas Müller fagnar marki fyrir Þjóðverja. stækka

Thomas Müller fagnar marki fyrir Þjóðverja. Reuters

FIFA, Alþjóða knattspyrnusambandið, hefur tilnefnt þrjá leikmenn sem koma til greina sem besti ungi leikmaðurinn í heimsmeistarakeppninni í Suður-Afríku.

Það eru þýski sóknarmaðurinn Thomas Müller, mexíkóski kantmaðurinn Giovani Dos Santos og Andre Ayew, miðjumaður frá Gana. Tækninefnd keppninnar valdi þessa þrjá en talið er fullvíst að Müller hreppi hnossið.

Hann yrði þá annar Þjóðverjinn í röð til að vinna þennan titil en Lukas Podolski hlaut hann á HM í Þýskalandi 2006.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is