Bæði lið eiga Cruyff mikið að þakka

Johan Cruyff ræðir við Bert van Marwijk þjálfara Hollendinga í rútu hollenska liðsins. stækka

Johan Cruyff ræðir við Bert van Marwijk þjálfara Hollendinga í rútu hollenska liðsins. Reuters

Spánn og Holland, sem leika til úrslita um heimsmeistaratitilinn í knattspyrnu í kvöld, geta bæði þakkað einum manni fyrir að fyrir innblásturinn að þeirra leikstíl - Johan Cruyff.

Cruyff var í hollenska liðinu sem tapaði fyrir Þjóðverjum í úrslitaleik HM 1974 en áhrif hans geta sést á spænska liðinu jafn mikið og á liði landa hans, þökk sé veru hans hjá Barcelona.

„Ég var fulltrúi þess tíma þegar fallegur fótbolti var skemmtilegur og ennfremur árangursríkur," sagði Cruyff við fréttamenn í Suður-Afríku en Cruyff var frábær leikmaður og driffjöðurin í hollenska landsliðinu sem sló í gegn með fljótandi „total football" fyrir þremur áratugum síðan.

Varanleg áhrif Cruyff á spænskan fótbolta komu eftir dvöl hans hjá Barcelona. Á hátindi ferils síns lék hann með Börsungum upp úr 1970 og þjálfaði síðan liðið í átta ár og landaði fyrsta Evróputitli Katalóníuliðsins árið 1992.

Núverandi þjálfari Barcelona, Pep Guardiola, og fyrirrennari hans, Hollendingurinn Frank Rijkaard, léku báðir undir stjórn Cruyffs.

Hvorki fleiri né færri en sjö leikmenn frá Barcelona voru í byrjunarliði Spánverja í sigurleiknum á móti Þjóðverjum í undanúrslitum heimsmeistaramótsins og landsliðsþjálfarinn Vicente del Bosque er aðdáandi þess fótbolta með stuttu sendingum og miklum hreyfanleika sem féll Cruyff svo vel í geð.

Hollensku áhrifin hafa svo sannarlega verið ríkjandi hjá Barcelona undangengin ár. Hollendingarnir Louis Van Gaal og Frank Rijkaard þjálfuðu Barcelona og hollenskir leikmenn hafa verið áberandi í liðinu og má þar nefna Johan Neeskens, Ronald Koeman, Jordi, sonur Cruyffs, Patrick Kluivert, De Boer tvíburabræðurnir og Giovanni van Bronckhorst, núverandi fyrirliði Hollendinga.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is