Íþróttir
|
HM í fótbolta
| mbl
| 11.7.2010
| 22:49
Casillas valinn besti markvörðurinn
Iker Casillas fyrirliði heimsmeistara Spánverja var í kvöld valinn besti markvörður heimsmeistaramótsins í Suður-Afríku. Casillas kom Spánverjum tvívegis til bjargar í úrslitaleiknum gegn Hollendingum í kvöld þegar hann varði frá Arjen Robben og þá varði hann vítaspyrnu í leiknum gegn Paragvæjum í átta liða úrslitunum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






