Dómarinn setti spjaldamet

Howard Webb með rauða spjaldið á lofti í kvöld. stækka

Howard Webb með rauða spjaldið á lofti í kvöld. Reuters

Enski dómarinn Howard Webb setti met í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í knattspyrnu í kvöld þegar hann dró gula og rauða spjaldið samtals 14 sinnum upp úr vasanum.

Webb sýndi Hollendingum samtals 8 sinnum gula spjaldið og einu sinni rauða spjaldið en Johnny Heitinga var vísað af leikvelli. Í úrslitaleik Ítala og Frakka fyrir fjórum árum fór gula spjaldið fjórum sinnum á loft og rauða spjaldið einu sinni - þegar Frakkanum Zinedine Zidane var vikið af velli. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

finnur.is