Draumurinn rættist

„Draumurinn rættist," segir spænska blaðið El País á forsíðu í mánudagsútgáfu sinni en Spánverjar urðu heimsmeistarar í kvöld þegar þeir unnu Hollendinga 1:0 í úrslitaleik HM í Suður-Afríku.

„Spánn, Spánn, Spánn" er fyrirsögnin á El Mundo. „Eitt besta lið allra tíma hefur verið krýnt í þessari heimsmeistarakeppni."

„Iniesta opnaði gullna hliðið" sagði íþróttablaðið Marca en Andres Iniesta skoraði sigurmarkið undir lok framlengingar. „Við liðum þjáningar en það var þess virði."

Annað íþróttablað, AS, sagði að Spánverjar hefðu átt sigurinn skilinn á hollensku liði sem hætti aldrei að sækja. 

Eftir sigurinn í kvöld er ljóst að kolkrabbinn Páll í sædýrasafninu í Oberhausen í Þýskalandi spáði rétt fyrir um úrslit allra leikja þar sem hann var spurður álits.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is