Íþróttir
|
HM í fótbolta
| AFP
| 11.7.2010
| 17:24
| Uppfært
17:42
Mandela mætti á leikvanginn
Nelson Mandela, fyrrum forseti Suður-Afríku, er kominn á leikvanginn í Jóhannesarborg þar sem úrslitaleikur heimsmeistaramótsins í knattspyrnu hefst eftir um klukkustund. Mandela, sem er 91 árs, veifaði til viðstaddra. Hann mun síðan halda heim til sín og fylgjast með leiknum í sjónvarpi.
Mandela ók um leikvanginn í opnum bíl við hlið Grace Machel, eiginkonu sinnar, og veifaði til áhorfenda. Gríðarleg fagnaðarlæti kváðu við.
Mantela átti stóran þátt í því að Suður-Afríka fékk að halda heimsmeistaramótið. Hann ætlaði að vera viðstaddur opnunarhátíðina 11. júní en kvöldið áður lést 13 ára barnabarnabarn hans í bílslysi.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






