Íþróttir
|
HM í fótbolta
| mbl
| 11.7.2010
| 14:46
Mandela viðstaddur lokahóf HM
Nelson Mandela, fyrrum forseti Suður-Afríku, verður viðstaddur lokahóf heimsmeistaramótsins í knattspyrnu í Jóhannesarborg í dag en heldur síðan heim til að fylgjast með úrslitaleiknum í sjónvarpi, að sögn sonarsonar Mandelas.
„Hann mun koma fyrir áður en lokaathöfnin hefst og heilsa upp á gesti en halda síðan heim aftur," sagði Nkosi Zwelivelile Mandela, sem talar fyrir hönd fjölskuldunnar.
„Hann ætlar að heilsa upp á fólk í 15-30 mínútur," bætti hann við.
Annar sonarsonur Mandela sagði í dag, að Alþjóðaknattspyrnusambandið hefði lagt hart að Mandela að vera viðstaddur úrslitaleikinn í kvöld en það var einkum Mandela að þakka, að HM er haldið í Suður-Afríku.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






