Íþróttir
|
HM í fótbolta
| AFP
| 11.7.2010
| 21:39
Þögn sló á Amsterdam
Það er óhætt að segja, að þögn hafi slegið á Amsterdam þegar flautað var til leiksloka í úrslitaleik Hollendinga og Spánverja á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu. Talið er að um 180 þúsund manns hafi fylgst með leiknum á á stórum sjónvarpsskjám í miðborginni.
Afar góð stemmning var meðan á leiknum stóð allt þar til Andres Iniesta skoraði sigurmark Spánverja undir loka framlengingar en fram að því var leikurinn markalaus. Fólk blés í vuvuzelalúðra og skemmti sér hið besta. En í leikslok grétu sumir og aðrir gengu hljóðlega á brott.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin







