Vilja að Mandela mæti á leikinn

Sulley Muntari, leikmaður Gana, ræðir við Nelson Mandela í byrjun júlí. stækka

Sulley Muntari, leikmaður Gana, ræðir við Nelson Mandela í byrjun júlí. Reuters

Sonarsonur Nelsons Mandela, fyrrum forseta Suður-Afríku, segir að Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, hafi lagt gífurlegan þrýsting á afa sinn um að mæta á úrslitaleik heimsmeistaramótsins í knattspyrnu, sem fer fram í kvöld í Jóhannesarborg. 

Mandla Mandela segir við breska ríkisútvarpið BBC, að þetta gæti orðið erfitt fyrir afa sinn, sem verður 92 ára í næstu viku. Mandela ætlaði að vera viðstaddur opnunarhátíð mótsins en hætti við þegar barnabarnabarn hans, Zenani Mandela sem var 13 ára, lét lífið í bílslysi kvöldið áður. Hún var á leið heim eftir tónleika, sem haldnir voru í tilefni af keppninni. 

Sepp Blatter, forseti FIFA, hefur sagt að það yrði „dásamlegt“ ef Mandela yrði viðstaddur leikinn.  

Úrslitaleikurinn milli Spánverja og Hollendinga hefst klukkan 18:30 og er sýndur beint í Ríkissjónvarpinu. Þá verður fylgst með leiknum í beinni lýsingu á mbl.is.  

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is