Spænska liðið lent í Madríd

Iker Casillas eða „Heilagur Iker“ (sp. San Iker), markvörður og fyrirliði spænska landsliðsins, átti stórleik ... stækka

Iker Casillas eða „Heilagur Iker“ (sp. San Iker), markvörður og fyrirliði spænska landsliðsins, átti stórleik í leiknum í gær. Reuters

Spænska landsliðið í knattspyrnu er komið til Madrídar, höfuðborgar Spánar, með heimsbikarinn. Airbus-þota liðsins lenti á Barajas-flugvellinum rétt eftir hádegi í dag að íslenskum tíma. 

Liðið hvílist nú á hóteli í grennd við flugvöllinn. Síðar í dag tekur við mikil dagskrá þar sem liðið mun meðal annars heimsækja Zapatero, forsætisráðherra í Moncloa-höllinni rétt norðaustan við miðborgina og konungsfjölskylduna í konungshöllinni, sem er afar glæsileg bygging og stendur í hjarta miðborgarinnar. 

Iker Casillas, fyrirliði og markvörður liðsins, kom sigurreifur út úr flugvélinni með bikarinn á lofti. Hann átti erfitt með að halda aftur af sér eftir sigurinn í gær og tárin streymdu hömlulaust fram. Hann var 16 ára gamall þegar hann spilaði í fyrsta skipti fyrir aðallið Real Madrid og var þekktur fyrir það að hjóla alltaf á æfingar enda hafði hann ekki aldur til að aka bifreið.

Spánverjar eru afar stoltir af árangri sinna manna. Íþróttablaðið Marca frá Madrid fer þar fremst í flokki enda þekkt fyrir allt annað en hófstillingu í fréttaflutningi. Þegar Andrés Iniesta, miðjumaðurinn hæfileikaríki, skaut föstu hnitmiðuðu skoti í vinstra hornið í marki Hollendinga á 118. mínútu fylgdi eftirminnileg fyrirsögn í kjölfarið á heimasíðu Marca:

„Iniesta hefur okkur til himna“ 

Carles Puyol, varnarmaðurinn kraftmikli, og Xavi Hernández, eða „Prófessorinn“ eins og hann er stundum nefndur, ...

Carles Puyol, varnarmaðurinn kraftmikli, og Xavi Hernández, eða „Prófessorinn“ eins og hann er stundum nefndur, léku stór hlutverk í sigri ... Reuters

Andrés Iniesta, sem færa má rök fyrir að sé einn hæfileikaríkasti knattspyrnumaður heims hélt um ...

Andrés Iniesta, sem færa má rök fyrir að sé einn hæfileikaríkasti knattspyrnumaður heims hélt um medalíuna við heimkomuna. Hann tryggði ... re

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is