Eitt versta spark á ferlinum
Xabi Alonso segir sparkið frá Nigel de Jong vera eitt það versta sem hann hefur orðið fyrir og skal engan undra. Reuters
Spánverjinn Xabi Alonso segir að sparkið sem hann fékk í brjóstkassann frá Hollendingnum Nigel de Jong vera eitt hið versta sem hann hafi orðið fyrir á ferli sínum sem knattspyrnumaður. Alveg hafi verið á mörkunum að hann hafi getað haldið leiknum áfram eftir að hafa orðið fyrir því.
De Jong gekk mjög hart fram í baráttu sinn við Alonso um knöttinn snemma leiks og var lánssamur að vera ekki vísað af leikvelli. Alonso þurfti að vera um tíma utan vallar eftir sparkið. Hann segist hafa verið með verki lengi eftir að leiknum lauk og um tíma óttast að vera rifbrotinn.
De Jong hefur sjálfur viðurkennt að hafa verið heppinn að sleppa með gult spjald fyrir sparkið.
„Þetta var hryllileg tækling og eins sú versta sem ég hef orðið fyrir á ferlinum. Það var ekkert auðvelt að halda áfram leiknum þjakaður af verkjum,“ sagði Alonso í viðtali í gær.






