Frakkar í 29. sætinu á HM

Frakkar voru meira í sviðsljósinu utan vallar en innan á HM. stækka

Frakkar voru meira í sviðsljósinu utan vallar en innan á HM. Reuters

FIFA, Alþjóða knattspyrnusambandið, hefur gefið út endanlega lokaröð liðanna 32 sem tóku þátt í úrslitakeppni HM í Suður-Afríku. Fráfarandi heimsmeistarar Ítalíu enduðu í 26. sæti og Frakkar höfnuðu í 29. sæti keppninnar.

Aðeins Hondúras, Kamerún og Norður-Kórea voru með lakari árangur á HM en Frakkar, heimsmeistararnir frá 1998, sem fóru heim með aðeins eitt stig eftir jafntefli við Úrúgvæ og töp gegn Mexíkó og Suður-Afríku.

Kamerún og Norður-Kórea voru einu liðin sem töpuðu öllum leikjum sínum á HM en Nýja-Sjáland var eina liðið sem ekki tapaði leik, gerði jafntefli í öllum þremur leikjunum. Það nægði þó Nýsjálendingum aðeins til þess að lenda í 22. sæti FIFA-listans.

Í útreikningum FIFA eru stig, árangur og styrkleiki mótherjanna lögð til grundvallar. Lokaröðin varð þessi:

1 Spánn
2 Holland
3 Þýskaland
4 Úrúgvæ

5 Argentína
6 Brasilía
7 Gana
8 Paragvæ

9 Japan
10 Chile
11 Portúgal
12 Bandaríkin
13 England
14 Mexíkó
15 Suður-Kórea
16 Slóvakía

17 Fílabeinsströndin
18 Slóvenía
19 Sviss
20 Suður-Afríka
21 Ástralía
22 Nýja-Sjáland
23 Serbía
24 Danmörk

25 Grikkland
26 Ítalía
27 Nígería
28 Alsír
29 Frakkland
30 Hondúras
31 Kamerún
32 Norður-Kórea

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is