Puyol hættur með landsliði Spánar

Carles Puyol fagnar markinu glæsilega gegn Þjóðverjum. stækka

Carles Puyol fagnar markinu glæsilega gegn Þjóðverjum. Reuters

Varnarmaðurinn öflugi Carles Puyol hefur ákveðið að draga sig í hlé frá spænska landsliðinu í knattspyrnu eftir sigur þess á heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku, samkvæmt spænska íþróttadagblaðinu Marca.

Puyol, sem er 32 ára, var í stóru hlutverki í varnarleik Spánverja á HM, auk þess sem hann skoraði glæsilegt sigurmark gegn Þjóðverjum í undanúrslitum keppninnar.

Marca segir að Puyol hafi óskað eftir því að vera ekki valinn í landslið Spánar fyrir vináttuleik gegn Mexíkó  11. ágúst en bæði landsliðsþjálfarinn Vicente del Bosque og íþróttastjóri spænska knattspyrnusambandsins, Fernando Hierro, hafi reynt mikið til að telja honum hughvarf.

Puyol lék sinn 90. landsleik þegar Spánn vann Holland í úrslitaleik HM á sunnudagskvöldið en sinn fyrsta landsleik lék hann einmitt gegn Hollendingum í nóvember árið 2000.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is