Maradona boðinn nýr samningur
Argentínska knattspyrnusambandið ætlar að bjóða Diego Maradona nýjan samning og fara þess á leit við hann að þjálfa áfram landslið þjóðarinnar framyfir lokakeppni HM í Brasilíu árið 2014.
Argentínska liðið þótti mjög sannfærandi á HM í Suður-Afríku á dögunum, allt þar til það steinlá gegn Þjóðverjum, 0:4, í átta liða úrslitunum. Maradona sagði eftir heimkomuna til Argentínu að hann væri þreyttur og reiknaði með því að hætta með liðið.
Frammistaða og leikstíll liðsins heilluðu hinsvegar stóran hluta argentínsku þjóðarinnar og Maradona og leikmenn hans fengu höfðinglegar viðtökur þegar þeir komu heim til Argentínu að mótinu loknu, þrátt fyrir vonbrigðin með að fara ekki lengra.
Julio Grondona, forseti argentínska knattspyrnusambandsins, hefur tilkynnt að hann muni hitta Maradona einhvern tíma á næstu dögum til að fara yfir samningsmálin með honum.






