Íþróttir
|
HM í fótbolta
| mbl
| 23.7.2010
| 14:51
Hafa greint markaskorun á HM
Í úttekt, sem markaðsrannsóknafyrirtækið CLARA gerði á markatölfræði á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu, kom í ljós að Þjóðverjar, sem enduðu í þriðja sæti, skoruðu tvöfalt fleiri mörk en heimsmeistarar Spánverja.
Þá skoruðu Portúgalar öll sín 7 mörk á móti Norður-Kóreu, sem fékk á sig flest mörk eða 12 talsins. Aðeins einu liði tókst að skora gegn Sviss en það var Chile. Úrúgvæ var þriðja markahæsta liðið en fékk á sig næst mest af mörkum.
CLARA er rúmlega 2 ára sprotafyrirtæki þar sem vinna 12 manns.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






