Messi: Allt liðið er í áfalli

Leikmenn argentínska landsliðsins.
Leikmenn argentínska landsliðsins. AFP

María Soledad íþróttafréttakona frá Argentínu, sem hefur fylgst með heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í Brasilíu, lést í umferðarslysi í Brasilíu í gær og hefur þessi sorglegi atburður komið við Lionel Messi og félaga hans í argentínska landsliðinu.

„Ég er í djúpri sorg eftir fráfall María Soledad Fernández. Allt liðið er í áfalli og við sendum okkar dýpstu samúðarkveðjur til hennar fjölskyldu og vina,“ skrifar Messi á fecebook síðu sína en hann er fyrirliði argentínska landsliðsins.

Fréttamannafundi argentínska landsliðsins var frestað til virðingar við Soledad sem var 26 ára gömul.

Argentínumenn mæta Belgum í átta liða úrslitum HM á laugardaginn.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert