Scolari: Neymar búinn að skila sínu

Luiz Felipe Scolari á fundinum í kvöld.
Luiz Felipe Scolari á fundinum í kvöld. AFP

Luiz Felipe Scolari, þjálfari brasilíska landsliðsins í knattspyrnu, segir að lið sitt sé afar einbeitt fyrir leikinn gegn Þýskalandi annað kvöld og það muni spjara sig þó Neymar og Thiago Silva séu ekki með í þessum mikilvæga undanúrslitaleik á HM.

„Neymar er búinn að skila sínu, nú er komið að okkur að skila okkar. Við höfum sætt okkur við það sem gerðist og einbeitum okkur að öðru. Í þessum leik spilum við ekki bara fyrir sjálfa okkur og þá drauma sem við höfum átt, heldur líka fyrir Neymar og allt sem hann hefur gert fyrir okkur," sagði Scolari á fréttamannafundi í kvöld.

Leikur Þýskaland og Brasilíu hefst klukkan 20 annað kvöld. Sigurliðið leikur til úrslita um heimsmeistaratitilinn næsta sunnudagskvöld við Argentínu eða Holland.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert