Romero: Ótrúleg hamingja

Sergio Romero var hetja Argentínu í kvöld þegar liðið komst áfram í úrslit heimsmeistaramótsins í knattspyrnu. Romero varði tvær vítaspyrnur Hollendinga en var þrátt fyrir það einbeittur í leikslok.

„Ég nýt augnabliksins núna á meðan ég get. Við njótum í kvöld en á morgun förum við strax að undirbúa úrslitaleikinn,“ sagði Romero sem gat leyft sér að gleðjast.

„Ég finn fyrir ótrúlegri hamingju. Ég er mjög glaður með allt, vítaspyrnur eru spurning um heppni í sannleika sagt. Ég hafði trú á sjálfum mér og sem betur fer fór það vel,“ sagði Romero.

Hetjan Sergio Romero var glaður í leikslok.
Hetjan Sergio Romero var glaður í leikslok. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert