Vlaar: Vík ekki undan ábyrgð

Ron Vlaar á vítapunktinum í kvöld. Spyrnan var hins vegar …
Ron Vlaar á vítapunktinum í kvöld. Spyrnan var hins vegar varin. AFP

Hollenski varnarmaðurinn Ron Vlaar klúðraði fyrstu spyrnu liðsins í vítaspyrnukeppninni gegn Argentínu í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í kvöld. Vlaar átti frábæran leik í vörninni en brást bogalistin á punktinum.

„Ég mundi aldrei víkja undan þeirri ábyrgð sem ég hef. Ég var ekki stressaður fyrir spyrnuna heldur einbeittur. En boltinn verður að fara inn og það gerði hann ekki,“ sagði Vlaar í leikslok.

Hann var þó ekki eini Hollendingurinn sem klúðraði spyrnu því Wesley Sneijder brenndi einnig af sinni, en Sergio Romero í marki Argentínu varði þær báðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert