Pogba besti ungi leikmaðurinn á HM

Paul Pogba.
Paul Pogba. AFP

Frakkinn Paul Pogba var valinn besti ungi leikmaðurinn á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu en miðjumaðurinn í meistaraliði Juventus átti góðu gengi að fagna með Frökkum sem töpuðu fyrir Þjóðverjum í átta liða úrslitunum.

Kólumbíumenn fengu háttvísiverðlaun Alþjóðaknattspyrnusambandsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert