Íslendingar tryggðu sér sæti í 8-liða úrslitunum á HM í handknattleik í dag með því að sigra Slóveníu, 32:31, í Halle/Westfalen. Logi Geirsson skoraði 8 mörk fyrir Ísland í leiknum og Snorri Steinn Guðjónsson 7.
Fréttavefur Morgunblaðsins tók leikmenn og þjálfara tali eftir leikinn og er hægt að lesa viðtölin á mbl.is og að auki eru hljóðupptökur aðgengilegar á vefnum.