Danir verða mótherjar Íslands í 8-liða úrslitum

Ulrik Wilbek landsliðsþjálfari Dana fagnar sigrinum gegn Tékkum í dag …
Ulrik Wilbek landsliðsþjálfari Dana fagnar sigrinum gegn Tékkum í dag á HM. Reuters

Danir verða mótherjar Íslands í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í handknattleik. Sigurliðið úr þeirri viðureign mætir annaðhvort Póllandi eða Rússlandi í undanúrslitum.

Þau lið sem mætast í 8-liða úrslitum eru:

Frakkland - Króatía

Pólland - Rússland

Þýskaland - Spánn

Danmörk - Ísland

Sigurliðið úr viðureign Íslands og Danmerkur mætir í undanúrslitum sigurliðinu úr viðureign Póllands og Rússlands. Þessi leikir fara fram í Hamborg og undanúrslitaleikir þessara liða fara einnig fram í Hamborg.

Þau fjögur lið sem fyrir HM voru talin sterkust og líklegust til afreka leika í 8-liða úrslitum í Köln. Heimsmeistaralið Spánverja leikur gegn gestgjöfum Þjóðverja. Ólympíumeistaralið Króatíu og Evrópumeistaralið Frakka eigast við Köln. Sigurliðin úr þessum leikjum eigast síðan við í undanúrslitum keppninnar.

Danir áttu í vandræðum með Tékka í dag og eftir aðeins 7 mínútur var staðan 6:1 fyrir Tékka. Danir voru með tveggja marka forskot í hálfleik, 17:15, en lokatölur leiksins voru 33:29. Ísland lék gegn Dönum á æfingamóti í Danmörku fyrir HM þar sem að liðin skildu jöfn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert