Snorri:„Ótrúlega svekkjandi“

Lasse Boesen tekur Snorra Stein Guðjónsson föstum tökum í leiknum …
Lasse Boesen tekur Snorra Stein Guðjónsson föstum tökum í leiknum í kvöld. Reuters

„Þetta var ótrúlega svekkjandi og ég veit eiginlega ekki hvað ég á að segja,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson leikmaður íslenska landsliðsins í handknattleik í sjónvarpsviðtali eftir 42:41-tap liðsins gegn Dönum í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í Hamborg.

Snorri skoraði 15 mörk í leiknum en hann sagði að það skipti engu máli. „Við töpuðum í 8-liða úrslitum í leik sem hefði getað endað með okkar sigri. Það skiptir því engu hvort ég hafi skorað 15 eða 25 mörk,“ bætti Snorri við.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert