Hedin: Berjið Alexander

Robert Hedin stúrinn á svip á norska varamannabekknum.
Robert Hedin stúrinn á svip á norska varamannabekknum. Reuters

Glöggir sjónvarpsáhorfendur tóku eftir miður skemmtilegum fyrirmælum Roberts Hedins, þjálfara norska landsliðsins í handknattleik, í einu af leikhléunum í viðureign Íslands og Noregs á HM í Linköping í kvöld.

Hedin hafði aðeins eina fyrirskipun fram að færa til sinna manna: "Berjið Alexander Petersson," voru skilaboðin sem þeir voru sendir með inná völlinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert