Íþróttir
|
HM í handbolta
| mbl
| 27.1.2011
| 15:24
| Uppfært
15:41
Enginn Íslendingur í draumaliði Bents
Daninn Bent Nyegaard handboltasérfræðingur dönsku sjónvarpsstöðvarinnar TV2 hefur valið draumalið sitt á heimsmeistaramótinu. Enginn Íslendingur kemst í liðið hjá Nyegaard sem þjálfaði karlalið Fram á árum áður.
Nyegaard hefur fylgst grannt með HM í Svíþjóð sem og síðustu stórkeppnum en hann er vel þekktur í handboltaheiminum og nýtur virðingar í honum.
Draumalið Nyegaards lítur þannig út:
Markvörður: Johan Sjöstrand (Svíþjóð)
Vinstri skytta: Mikkel Hansen (Danmörku)
Hægri skytta: Marko Vujin (Serbíu)
Leikstjórnandi: Nikola Karabatic (Frakklandi)
Línumaður: Julen Aguinagalde (Spáni)
Vinstri horn: Klónaður Anders Eggert og Lars Christiansen (Danmörku)
Hægri horn: Vedran Zrnic (Króatíu)
Þjálfari: Ulrik Wilbek (Danmörku)
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






