Norðmenn knúðu fram sigur

Robert Hedin og leikmenn norska landsliðsins fagna einu af mörkum sínum gegn Serbum í kvöld ... stækka

Robert Hedin og leikmenn norska landsliðsins fagna einu af mörkum sínum gegn Serbum í kvöld í leiknum um 9. sætið. Reuters

Norðmenn tryggðu sér 9. sætið á heimsmeistaramótinu í handknattleik í kvöld þegar þeir unnu Serba, 32:31, í framlengdum leik í Kristianstad. Serbar voru með tveggja marka forskot í hálfleik, 16:14. Jafnt var að loknum venjulegum leiktíma, 29:29.

Norðmenn unnu því tvo síðustu leiki sína á HM. Þeir höfnuðu einnig í 9. sæti á HM í Króatíu fyrir tveimur árum.

Håvard Tvedten skoraði níu mörk fyrir Norðmenn í kvöld og Bjarte Myrhol kom næstur með sex mörk. Momir Ilic var markahæstur í liði Serba með sjö mörk og Ivan Stankovic skoraði sex sinnum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, HM í handbolta — Fleiri fréttir

Þriðjudaginn 10. apríl


finnur.is