Þjóðverjar náðu 11. sætinu

Þjóðverjinn Patrick Groetzki sækir að vörn Argentínu í leiknum í dag en Pablo Portela og ... stækka

Þjóðverjinn Patrick Groetzki sækir að vörn Argentínu í leiknum í dag en Pablo Portela og Gonzalo Carou verja honum leiðina. Reuters

Þjóðverjar tryggðu sér 11. sætið á heimsmeistaramótinu í handknattleik með sigri gegn Argentínu, 40:35, í tvíframlengdum leik. Staðan var 27:27 eftir venjulegan leiktíma og 31:31 eftir fyrri framlengingu.

Þjóðverjar voru með þriggja marka forskot þegar rétt innan við tíu mínútur voru til leiksloka, 23:20, og virtust vera að tryggja sér öruggan sigur. Argentínumenn gáfust ekki upp og jöfnuðu leikinn.

Í fyrri framlengingunni var allt í járnum en leiðir skildu í seinni framlengingunni og Þjóðverjar sigu frammúr.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, HM í handbolta — Fleiri fréttir

Þriðjudaginn 10. apríl


finnur.is