Átök í Egyptalandi koma við handboltann
Ólíklegt er að íslenska landsliðið verði vart við afleiðingar átaka í Egyptalandi. Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Mikil mótmæli og átök sem nú eiga sér stað í Egyptalandi hafa áhrif á handboltann og jafnvel á heimsmeistaramótið í Svíþjóð, með litlum hætti þó. Egyptar mótmæla nú kröftulega forseta landsins Hosni Mubarak og krefjast þess að hann láti af embætti.
Stjórnvöld gripu þess vegna til þess ráðs að loka fyrir aðgang almennings að netinu en net- og farsímasamband hefur verið slæmt í Egyptalandi í dag. Þetta þýðir að heimasíða alþjóða handknattleikssambandsins liggur niðri en vefþjónn sambandsins er staðsettur í Kaíró höfuðborg Egyptalands. Ástæða þess að síðan er vistuð í Egyptalandi gæti verið sú að forseti sambandsins er Egypti, Hassan Moustafa.
Ljóst er að þetta hefur ekki bein áhrif á mótið en upplýsingaflæði um úrslit leikja og tölfræði úr þeim er að finna á síðunni. Opinber heimasíða leikanna handball2011.com hefur þess vegna tekið að sér að aðstoða heimasíðu sambandsins sem er ihf.info. Ekki er vitað hvar netþjónn heimasíðu mótsins er staðsetur en eitt er víst að það er ekki í Egyptalandi. omt@mbl.is







