Frakkar í úrslit á HM

Guillaume Joli fagnar marki sínu fyrir Frakka. stækka

Guillaume Joli fagnar marki sínu fyrir Frakka. Reuters

Frakkar leika til úrslita á heimsmeistaramótinu í handknattleik en þeir voru að leggja Svía að velli, 29:26, í fyrri undanúrslitaleiknum sem háður var í Malmö. Frakkar höfðu undirtökin allan tímann en þeir voru þremur mörkum yfir í leikhéi, 15:12.

Frakkar náðu mest sjö marka forskoti, 24:17, en Svíar neituðu að gefast upp. Þeir náðu að minnka muninn niður í tvö mörk, 25:23, þegar fjórar mínútur voru til leiksloka en Frakkar voru sterkari á endasprettinum og leika til úrslita á sunnudaginn gegn Dönum eða Spánverjum sem mætast í Kristianstad í kvöld.

Mickaël Guigou og Betrand Gille skoruðu 8 mörk hvor fyrir Frakka en hjá Svíum var Jonas Källmann atkvæðamestur með 5 mörk.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, HM í handbolta — Fleiri fréttir

Þriðjudaginn 10. apríl


finnur.is